UJ fordæma ofbeldið í Íran

Ungir jafnaðarmenn, ungliðahreyfing Samfylkingarinnar, fordæma grimmd íranskra stjórnvalda í garð almennings. Fólk um allt landið, sem að undanförnu hefur mótmælt meintum kosningasvikum forsetans Mahmoud Ahmadinejad, sætir harðræði hersveita stjórnvalda, sem hafa bannað mótmæli, lokað á fréttaflutning og beitt gengdarlausu ofbeldi. Að minnsta kosti nítján manns hafa dáið í óeirðunum og mörg hundruð hafa verið handteknir.

Ungir jafnaðarmenn skora á íslensk stjórnvöld að þrýsta með alþjóðasamfélaginu á að ofríkinu linni og lýðræðislegum vilja kjósenda í Íran verði framfylgt. Það er skylda íslenskra stjórnvalda að beita sér fyrir því á alþjóðavettvangi að aðrar þjóðir búi við sömu mannréttindi og við búum við hér á landi.Ungir jafnaðarmenn, ungliðahreyfing Samfylkingarinnar, fordæma grimmd íranskra stjórnvalda í garð almennings. Fólk um allt landið, sem að undanförnu hefur mótmælt meintum kosningasvikum forsetans Mahmoud Ahmadinejad, sætir harðræði hersveita stjórnvalda, sem hafa bannað mótmæli, lokað á fréttaflutning og beitt gengdarlausu ofbeldi. Að minnsta kosti nítján manns hafa dáið í óeirðunum og mörg hundruð hafa verið handteknir.

Ungir jafnaðarmenn skora á íslensk stjórnvöld að þrýsta með alþjóðasamfélaginu á að ofríkinu linni og lýðræðislegum vilja kjósenda í Íran verði framfylgt. Það er skylda íslenskra stjórnvalda að beita sér fyrir því á alþjóðavettvangi að aðrar þjóðir búi við sömu mannréttindi og við búum við hér á landi.

Deila

Facebook
Twitter
Ungir jafnaðarmenn

Nýlegar færslur

Fréttir

Ný stjórn kjörin á landsþingi UJ

Landsþing Ungs jafnaðarfólks var haldið á laugardaginn, 31. ágúst 2024 í Samfylkingarhúsinu íHafnarfirði, Strandgötu 43.

Fréttir

Jöfn og Frjáls komið út

Jöfn og Frjáls er komið út. Blaðið sem er málgagn Ungs Jafnaðarfólks hefur nú verið