Ályktun vegna innflytjendamála og yfirlýsingar frjálslyndra

Undirritaðir forystumenn í stjórnmálum ungs fólks lýsa vonbrigðum með þá ákvörðun nokkurra forystumanna í Frjálslynda flokknum að ala á trúarbragðafordómum og tortryggni í garð útlendinga í tilraunum sínum til að auka fylgi flokks síns. Undirritaðir forystumenn í stjórnmálum ungs fólks lýsa vonbrigðum með þá ákvörðun nokkurra forystumanna í Frjálslynda flokknum að ala á trúarbragðafordómum og tortryggni í garð útlendinga í tilraunum sínum til að auka fylgi flokks síns.

Þannig popúlískur málflutningur er meiðandi gagnvart hópi Íslendinga og stuðlar að sundrungu í samfélaginu. Popúlismi sem þessi margfaldar hættuna á því að þau meintu vandamál, sem Magnús Þór Hafsteinsson og Jón Magnússon sjá fyrir sér, verði að veruleika í íslensku samfélagi. Mikilvægi þess að spyrna fótum gegn þessum málflutningi verður ekki því ofmælt.

Ofsinn og orðfærið sem einkennir málflutning Magnúsar Þórs og Jóns er bersýnilega til þess eins ætlaður að kalla fram ótta og reiði í hugum kjósenda. Nægir þar að nefna fjarstæðukenndan hræðsluáróður Jóns Magnússonar í viðtali í Silfri Egils og tal Magnúsar Þórs Hafsteinssonar í sama þætti um atvinnuþjófnað og að verið sé að kaffæra íslensku þjóðina. Þessi málflutningur er ekki yfirvegaður, ekki öfgalaus og ekki byggður á rökum.

Þau álitamál sem snúa að þjóðinni varðandi aukinn áhuga útlendinga til að starfa á Íslandi, og sívaxandi fjölda fólks sem ákveður að ganga inn í íslenskt samfélag, eiga ekkert skylt við þær rakalausu upphrópanir sem Magnús Þór og Jón hafa uppi. Í stað þess að stuðla að klofningi milli Íslendinga af ólíkum uppruna ber stjórnmálaflokkum, og öðrum þátttakendum í stefnumótun, að stuðla að því að hér þróist áfram samfélag þar sem fólk er boðið velkomið, en sé ekki hafnað á grundvelli pólitísks popúlisma, hræðsluáróðurs eða fordóma. Þess vegna er mikilvægt að aðrir stjórnmálaflokkar haldi áfram að byggja stefnu sína í málefnum innflytjenda á því skynsamlega sjónarmiði að hér á landi geti menn lært og starfað, þrifist og dafnað, óháð því hver sé þeirra uppruni.

Agnar Freyr Helgason og Helga Tryggvadóttir, f.h. ritstjórnar Vefritsins
Andri Heiðar Kristinsson, formaður Vöku
Ásgeir Runólfsson, framkvæmdastjóri Stúdentaráðs Háskóla Íslands
Auður Lilja Erlingsdóttur, formaður Ungra Vinstri Grænna
Borgar Þór Einarsson, formaður Sambands ungra sjálfstæðismanna
Drífa Kristín Sigurðardóttir, ritstjóri Deiglunnar
Erla Ósk Ásgeirsdóttir, formaður Heimdallar
Eva María Hilmarsdóttir, formaður Röskvu
Friðbjörn Orri Ketilsson, formaður Frjálshyggjufélagsins
Jakob Hrafnsson, formaður Sambands ungra framsóknarmanna
Kjartan Due Nielsen, formaður Ungra jafnaðarmanna í Reykjavík
Magnús Már Guðmundsson, formaður Ungra jafnaðarmanna
Sigurður Örn Hilmarsson, oddviti Vöku í Stúdentaráði Háskóla Íslands
Þórlindur Kjartansson, ritstjóri Deiglunnar

Deila

Facebook
Twitter
Ungir jafnaðarmenn

Nýlegar færslur

Uncategorized @is

Ungt jafnaðarfólk á Landsfundi

Þann 28. – 29. október síðastliðinn var haldinn Landsfundur Samfylkingarinnar – Jafnaðarflokks Íslands á Grand