Óskiljanleg ákvörðun dómsmálaráðherra um skipun í embætti Hæstaréttardómara

Það hefur verið með hreinum ólíkindum að fylgjast með farsanum í kringum Björn Bjarnason við nýafstaðna skipun í embætti hæstaréttardómara.
Það hefur verið með hreinum ólíkindum að fylgjast með farsanum í kringum Björn Bjarnason við nýafstaðna skipun í embætti hæstaréttardómara.

Hentistefna hinna fáu
Sú ákvörðun að taka ekki mark á ráðgjöf Hæstaréttar um hver væri hæfastur til að taka þar sæti sýnir svart á hvítu þá hentistefnu sem ræður ríkjum í musteri hins réttsýna dómsmálaráðherra. Framganga Björns í þessu máli hlýtur að vekja efasemdir um raunverulegan tilgang skipunar Ólafs Barkar í embættið, vangaveltur um pólitíska skipan hljóta að koma upp í hugann. Eiríkur Tómasson og Ragnar H. Hall hafa mun víðtækari reynslu og menntun, sem víkur að lokum fyrir prófi Ólafs Barkar í Evrópurétti – kannski er þetta merki um að ríkisstjórnin sé farin að taka Evrópuumræðuna alvarlega og er það þá mikið gleðiefni.

Þrískipting ríkisvaldsins?
Það er orðið mjög vafasamt þegar handhafar æðsta dómsvalds landsins eru valdir á hátt sem engin fordæmi eru fyrir, rökin eru hjákátleg og reyndar svo yfirborðskennd að það er grátbroslegt. Vitibornar skýringar eru engar, enda er það fyrirfram vitað að ástæðan að baki niðurstöðu Björns eru allt aðrar en eðlilegar. Það hlýtur að vera krafa þjóðfélagsins að aðferðin að baki ráðningu Hæstaréttardómara verði breytt. Hún verði færð úr pólitískum farvegi dómsmálaráðherra yfir í lýðræðislegri farveg Alþingis, þar sem hið raunverulega kjör í embætti Hæstaréttardómara væri framkvæmt af lýðræðislega kjörnum fulltrúum þjóðarinnar.

Gjörspillt umhverfi
Vinnubrögð dómsmálaráðherra eru þess eðlis að fólk gerir réttmætt spurningamerki um hvort þeim aðilum sem fara með vald þessa lands sé treystandi – þar hvort þeir beita öllum brögðum til að koma sínum flokksgæðingum í öll valdaembætti. Spillingin leynist víða eftir langa stjórnarsetu ríkisstjórnarflokkanna, fyrsta verk Samfylkingarinnar þegar hún kemst til valda verður að lofta ærlega til í Stjórnarráðinu eftir áralanga spillingarsetu Sjálfstæðis- og Framsóknarflokksins.

Deila

Facebook
Twitter
Ungir jafnaðarmenn

Nýlegar færslur

Uncategorized @is

Ungt jafnaðarfólk á Landsfundi

Þann 28. – 29. október síðastliðinn var haldinn Landsfundur Samfylkingarinnar – Jafnaðarflokks Íslands á Grand