Á Landsþingi Ungs Jafnaðarfólks 2025 sem haldið er á Center Hotels Miðgarði í dag, 13. september var stjórnmálaályktunin ,,Forgangsröðum framtíðinni“ samþykkt. Snýr ályktunin að þremur málum sem hreyfingin vil sjá ríkisstjórn Kristrúnar Frostardóttur forgangsraða í þágu ungs fólks. Eftirfarandi er stjórnmálaályktunin í heild sinni:
Forgangsröðum framtíðinni
Á síðasta löggjafarþingi náðist ekki að ljúka við mörg þingmál ríkisstjórnarinnar sökum tíma og málþófs stjórnarandstöðunnar. Mörg þessara mála snerta hagsmuni og lífsgæði ungs fólks beint og krefst Ungt jafnaðarfólk því að ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur ljúki afgreiðslu eftirfarandi mála á löggjafarþingi næsta veturs.
Vextir og verðbólga
Háir vextir og verðbólga bitna illa á samfélaginu öllu en þá sérstaklega ungu fólki sem er oft á tíðum stórskuldugt, með lágar tekjur og sér upphæðina sem þau þurfa að safna til að eiga fyrir útborgun hækka og hækka. Í síðastliðnum kosningum lofuðu flokkarnir sem nú mynda ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttir að ná vöxtum og verðbólgu niður með hraði. Eitthvað hefur áunnist á fyrsta þingi ríkisstjórnarinnar en betur má ef duga skal því hægst hefur á vaxtalækkunarferlinu.
Því beinir Ungt jafnaðarfólk því til ríkisstjórnarinnar að leggja áfram megin áherslu á efnahagslegan stöðugleika. Við vitum hvernig stjórnvöld geta haft áhrif, það verður að beita þeim tólum af meiri aga, halda áfram að hagræða í rekstri og koma skikki á hallarekstur ríkissjóðs. Tryggja þarf eftir fremsta megni að hagræðingin bitni ekki á almenningi með hækkunum á opinberum gjöldum innan velferðarkerfisins. Þá þarf að taka á þenslunni þar sem hún er í samfélaginu með því að sækja tekjur hjá þeim sem valda þenslunni. Ungt fólk sem er háð launaseðli sínum, er með ung börn og skuldir á ekki að þurfa greiða fyrir verðbólguna á meðan þeir sem valda þennslunni sleppa. Þá ætti ríkisstjórnin að bæta í vaxtabætur og barnabætur fyrir ungt fólk á meðan vaxtastigið er hátt. Þetta mun taka tíma en það vissum við líka við gerð kosningaloforða í haust, nú er komið að því að standa við þau.
Frumvarp um regluverk utan um AirBnb og stórtæka húsnæðisfjárfesta
Ungt jafnaðarfólk krefst þess að lagt verði fram frumvarp um AirBnb þar sem að regluverk í kringum greinina verður hert. Einnig þarf að samþykkja löggjöf um tómthússkatt sem kemur í veg fyrir að fjárfestar kaupi upp fjölda íbúða sem síðan eru látnar sitja tómar og hækka í virði. Þessar aðgerðir voru stór hluti af Framkvæmdaplani flokksins í húsnæðis og kjaramálum, bráðaaðgerðir til að halda aftur af hækkun fasteigna- og leiguverðs.
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur á að byggja upp húsnæðismarkað sem er þess eðlis að húsnæði sé heimili en ekki fjárfesting. Húsnæðisöryggi eru mannréttindi og er því nauðsynlegt að Samfylkingin stuðli ennþá að uppbyggingu húsnæðis fyrir óhagnaðardrifin langtímaleigufélög auk áframhaldandi uppbyggingar á Stúdentaíbúðum um allt land.
Auka þarf framboð af húsnæði sem er ætlað ungu fólki, fyrstu kaupendum. Of margar nýjar íbúðir eru byggðar með aðeins hátekjufólk í huga. Aðgerðir líkt og að heimila uppbyggingu einingarhúsa og að einfalda regluverk svo auðveldara sé að breyta atvinnuhúsnæði í góðar íbúðir eru góð byrjun.
Raunverulegar aðgerðir í geðheilbrigðismálum
Undanfarin ár höfum við séð afleiðingar af vanlíðan ungs fólks svart á hvítu. Fréttir af auknum hegðunarvanda ungmenna, ofbeldisbrotum og stórfelldum líkamsárásum frömdum af ungu fólki eru að verða tíðari þá þarf að setja aukna vanlíðan barna og ungmenna í samhengi við félagsstöðu þeirra þar sem rannsóknir sýna að aukin hætta er á vanlíðan hjá börnum og ungmennum sem alast upp við fátækt. Hluti vandans á rót sína í að rekja til stöðunnar í geðheilbrigðiskerfinu. Það getur reynst fólki erfitt að kortleggja kerfið, vita af úrræðum og þeim sem tekst það og ná að leita sér aðstoðar, t.a.m. hjá sálfræðingum ganga út frá einkastofum með allt að 25.000 kr. reikning. Skortur á úrræðum, biðlistar og þjónustuleysi á landsbyggðunum gerir það að verkum að ungt fólk borgar baggann. Þá þarf að auka fjárframlög og áherslu á forvarnir í geðheilbrigðismálum. Mikilvægi fyrstu þúsund daganna í lífi barns þarf að gefa vægi í stjórnmálum og því þarf sérstaklega að huga að stuðningi og lífskjörum fyrir nýja og verðandi foreldra í viðkvæmri stöðu.
Ungt jafnaðarfólk beinir því að ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur að byggja upp sterkt opinbert geðheilbrigðiskerfi sem er aðgengilegt öllum sem á því þurfa að halda. Stytta þarf biðlista, auka þjónustu á öllu landinu og tryggja að þjónustan sé aðgengileg á heilsugæslum og í grunn-, framhalds- og háskólum.
Hlekkur að tillögunni í pdf. formi:



