Velferð barna er ekki „óþarfa fitulag“ – Stjórnmálaályktun Landsþings 2026

Jóhannes Óli, forseti Ungs jafnaðarfólks kynnti ályktunina

Á síðastliðnum árum hefur andleg líðan ungmenna farið versnandi og afleiðingarnar eru augljósar. Unglingadrykkja hefur aukist, ofbeldi meðal ungmenna orðið algengara og námsárangri hrakað. Það hefur mikið verið rætt um þennan vanda en það er kominn tími á raunverulegar aðgerðir og samstillt átak.

Við vitum hvað virkar
Uppeldi íslenskra barna er samstarfsverkefni margra anga samfélagsins. Foreldrar, skólar, félagsmiðstöðvar, íþróttafélög og æskulýðshreyfingar koma öll að því að búa til sterka einstaklinga sem eru vel undirbúnir fyrir lífið. Ungt jafnaðarfólk kallar eftir því að allir þessir aðilar og stjórnvöld komi sér saman um stór skref, þjóðarátak í velferð og menntun barna og ungmenna.

Hér á landi þekkjum við vel að takast á við stór verkefni er varða lýðheilsu barna. Íslenska forvarnarmódelið varð að fyrirmynd á heimsvísu vegna þess hversu vel tókst að draga úr unglingadrykkju eftir aldamót. Við vitum að þetta er hægt, en þetta gerist ekki af sjálfu sér. Lykillinn að árangri er heilsusamleg hreyfing og þátttaka í tómstundum. Efla verður þjónustu við börn og ungmenni innan sem utan skóla. Standa þarf vörð um störfin á gólfinu og auðvelda aðgengi að sálfræðiþjónustu, félagsráðgjöf og skólahjúkrun innan skóla til að tryggja velferð barna og jöfn tækifæri. Þannig komum við á ró í skólastofunni og veitum kennurum rými til að kenna. Byggja þarf upp öflugar félagsmiðstöðvar og félagasamtök svo börn hafi stað til að hittast á og skemmta sér í öruggu umhverfi. Þetta gerist ekki á einni nóttu en svona náum við árangri.

Á síðasta þingvetri hófst vinna við fyrstu ungmennastefnu Íslands, það er stórt skref en henni verða líka að fylgja aðgerðir. Ungt jafnaðarfólk hvetur ríkisstjórnina til að klára þá stefnu og á grundvelli hennar leiða samtal um þjóðarátak í lýðheilsu barna.

Meirihlutinn í Reykjavík grefur undan velferð barna
Á sama tíma og fréttir berast af hnignandi niðurstöðum í PISA-könnunum og versnandi líðan ungmenna virðist meirihlutinn í Reykjavíkurborg hafa einbeittan vilja til að gera vont ástand verra.

Í kosningunum í vor boðuðu flokkarnir sem nú mynda meirihluta að farið yrði í hagræðingu og tiltekt í Ráðhúsinu til að skera af fitulög. Þau sögðust ætla að ganga hratt til verka en fáa grunaði að það þýddi að farið yrði í niðurskurð í þjónustu við börn og ungmenni. Því þegar kom að fjöldauppsögnum á fólki sem starfar að frístundastarfi og velferð barna mátti engan tíma missa. Meirihlutinn hefur hlaupið af stað og farið í vanhugsaðar aðgerðir án samráðs og samtals við ungmennin sjálf og fólk sem starfar í málaflokknum.

Aðgerðirnar fengu lítinn undirbúning og geta orðið til þess að þjónusta færist fjær ungmennunum. Það að minnka möguleikann til að grípa inn í hjá ungmennum sem sýna af sér áhættuhegðun og veita þeim stuðning þýðir að vandinn mun vaxa og hið opinbera fá hann í fangið seinna meir. Hér er hætt við því að sparnaður til skamms tíma skapi kostnað fyrir samfélagið allt til langs tíma.

Í borgarstjórnarkosningum var enginn að kalla eftir aðför að velferð barna og ungmenna í Reykjavík. Þvert á móti töluðu flestir flokkar á þá leið að auka ætti stuðning við börn og ungmenni. Ungt jafnaðarfólk skorar á meirihlutann í borginni að leggja sitt að mörkum til að bregðast við versnandi lýðheilsu ungmenna í stað þess að skera niður í þjónustu við börn og ungmenni.

– Samþykkt á Landsþingi 18. september 2026