
Kosningavaka UJ fyrir bresku þingkosningarnar
04
júl
2024
Ungt jafnaðarfólk býður öll velkomin í kosningavöku vegna þingkosninga Bretlands þann 4. júlí!
Kosningavakan er staðsett á 2. hæð á Hallveigarstíg 1, 101 Reykjavík. Gott aðgengi er að salnum, rampur og lyfta.
Boðið verður upp á léttar veitingar að breskum sið, óáfenga drykki og áfenga fyrir fyrstu þyrstu.
Kjörstaðir úti loka kl 21:00 á íslenskum tíma og eigum við von á fyrstu tölum fljótlega eftir það. Fram að því verður matur, létt spjall og spekúleringar um niðurstöður!
Hlökkum til að sjá ykkur!