Við þurfum (ekki) að velja

Auðvitað viljum við taka á móti flóttamönnum en við verðum að átta okkur á einu. Ef við opnum faðminn fyrir öllum þeim sem hingað vilja koma þá hrynur heilbrigðiskerfið. Hver á að borga undir öll veiku flóttamannabörnin? Við þurfum fyrst að lækna íslensk börn.

Ég vona að flestum ykkar hafi svelgst á kaffinu við þennan lestur. Þessi málflutningur gefur það nefnilega í skyn að útlendingar séu annars flokks. Hann málar mynd af flóttamönnum sem óæskilega ógn við heilbrigðiskerfið okkar. Eins og við þurfum að velja á milli þess hvort við aðstoðum flóttamenn eða Íslendinga. Þetta er tilraun til þess að skapa átök á milli tveggja viðkvæmra hópa í samfélaginu, flóttamanna annars vegar og fólks sem þarfnast aðstoðar heilbrigðiskerfisins hins vegar.

Sem betur fer hefur þessi málflutningur hingað til einskorðast við kommentakerfið og símatíma Útvarps sögu. Svíþjóðardemókratar, Danski Þjóðarflokkurinn og Sannir Finnar hafa haldið þessum málflutningi á lofti á norðurlöndum en hann hefur ekki áður heyrst frá stjórnmálamönnum hérlendis. Það breyttist síðastliðinn föstudag, þegar þingmennirnir Brynjar Níelsson (Sjálfstæðisflokki) og Katrín Júlíusdóttir (Samfylkingu) tókust á í Morgunútvarpi Rásar tvö. Tilefni umræðunnar var mál albönsku fjölskyldnanna tveggja sem sendar voru úr landi ásamt öðrum hælisleitendum í síðustu viku. Um málið sagði Brynjar: „Hvernig halda menn að kerfið verði ef við erum bara með opinn faðminn fyrir hverjum sem er. Þá verður ekkert kerfi og það verður heldur ekkert heilbrigðiskerfi. Ég segi eins og forsetinn; þetta er barnaleg einfeldni.”

Það er áhugavert að Brynjar Níelsson telji flóttamenn ógna íslensku heilbrigðiskerfi. Sýrlensku flóttamennirnir 55 eru ekki einu sinni komnir til landsins en samt virðist ríkisstjórn Brynjars á góðri leið með að rústa heilbrigðiskerfinu ein og óstudd. Getur verið að stærsta ógnin við heilbrigðiskerfið sé ekki þolendur stríðs og ofsókna sem hér fá skjól heldur ríkisstjórn Framsóknar og Sjálfstæðisflokks?

Það er ekki barnaleg einfeldni að halda að við getum gert bæði í einu, veitt stríðshrjáðum flóttamönnum skjól og rekið almennilegt heilbrigðiskerfi. Við getum aukið aðstoð við flóttamenn, við getum bætt kjör öryrkja og aldraðra og við getum tryggt Landspítalanum nauðsynlegt fjármagn. Þá getum við bætt sálfræðiþjónustu, barist gegn kynbundnu ofbeldi og tryggt öllum jafnan rétt til menntunar. Allt þetta getum við gert. Um þessi mál þurfum við ekki að velja.

Mikilvægasta val okkar mun eiga sér stað í kjörklefanum vorið 2017. Þá fáum við tækifæri til að hafna málflutningi Brynjars Níelssonar og velja mannúðlegri stefnu.

Óskar Steinn Ómarsson, ungur jafnaðarmaður.

Deila

Facebook
Twitter
Ungir jafnaðarmenn

Nýlegar færslur

Uncategorized @is

Ungt jafnaðarfólk á Landsfundi

Þann 28. – 29. október síðastliðinn var haldinn Landsfundur Samfylkingarinnar – Jafnaðarflokks Íslands á Grand