Veitum 500 flóttamönnum tækifæri á nýju lífi á Íslandi!

Miðstjórn Ungra jafnaðarmanna ályktar:

Stríðið í Sýrlandi hefur kostað hundruði þúsunda manns lífið og drifið milljónir á flótta. Vesturlönd geta ekki setið hjá meðan ein stærsta flóttamannakrísa sögunnar ríður yfir. Ungir jafnaðarmenn hvetja íslensk stjórnvöld til þess að axla ábyrgð og taka á móti 500 sýrlenskum flóttamönnum fyrir lok ársins 2017.

Yfir 200 þúsund manns hafa látið lífið í stríðinu sem geisað hefur í Sýrlandi frá árinu 2011. Á sama tíma hafa 9 milljónir Sýrlendinga flúið heimili sín. Um er að ræða stærsta flóttamannavanda sem heimurinn hefur staðið frammi fyrir frá lokum seinni heimsstyrjaldar. Heil kynslóð sýrlenskra barna er að alast upp við stríð og ofbeldi, án aðgangs að menntun eða heilbrigðisþjónustu. Þá hafa þúsundir Sýrlendinga lagt leið sína yfir Miðjarðarhafið í leit að betra lífi í Evrópu og margir drukknað á leiðinni.

Aðgerða er þörf. Ungir jafnaðarmenn telja óboðlegt að stjórnmálamenn á vesturlöndum sitji með hendur í skauti á meðan þúsundir flóttamanna deyja á hafi úti. Það er skylda Íslands að veita fórnarlömbum vopnaðra átaka skjól. Við krefjumst þess að íslensk stjórnvöld axli ábyrgð og hefji þegar í stað gerð aðgerðaráætlunar um móttöku á að minnsta kosti 500 sýrlenskum flóttamönnum fyrir lok ársins 2017.

 

Deila

Facebook
Twitter
Ungir jafnaðarmenn

Nýlegar færslur

Uncategorized @is

Ungt jafnaðarfólk á Landsfundi

Þann 28. – 29. október síðastliðinn var haldinn Landsfundur Samfylkingarinnar – Jafnaðarflokks Íslands á Grand