Ungir jafnaðarmenn krefjast þess að Maní fái að vera hér


Ungir jafnaðarmenn krefjast þess að Maní, 17 ára trans strákur frá Íran, fái dvalarleyfi á Íslandi ásamt fjölskyldu sinni.

Það var fyrst við komuna til Íslands sem Maní upplifði nægilegt öryggi til að koma út og vera hann sjálfur. Hér líður honum vel og hér vill hann eiga heima. Hann óttast um líf sitt og öryggi verði hann sendur aftur til Íran. 

Ungir jafnaðarmenn telja ómanneskjulegt að senda einstakling í stöðu Maní úr örygginu á Íslandi í óöryggi og óvissu í Portúgal, þar sem hætta steðjar að fjölskyldunni og brottvísun til Íran er möguleiki.

Mál Manís sýnir fram á alvarlega galla á framkvæmd útlendingalaga sem Ungir jafnaðarmenn hafa ítrekað bent á og gagnrýnt. Ekki er nægt tillit tekið til barna í samræmi við Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna, sem er þó búið að lögfesta hér á landi. Ekki er nægt tillit tekið til sérstakra aðstæðna eins og kynvitundar og kynhneigðar þegar lagt er mat á það hvort fólki sé veitt dvalarleyfi hér á landi. 

  1. Þá sýnir það fram á alvarlegan skort á samábyrgð og mannúð að taka mál Manís og fjölskyldu ekki einu sinni til efnislegrar meðferðar og beita fyrir sér heimild í Dyflinnarreglugerð. Heimild í Dyflinnarreglugerð trompar ekki skyldur okkar gagnvart Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna eða mannréttindi fólks almennt.

Að lokum telja Ungir jafnaðarmenn ámælisvert að ríkisstjórn Íslands hafi ekki beitt sér fyrir Maní á þeim tíma sem liðið hefur síðan málið kom upp í fjölmiðlum. Ráðherrar skreyta sig með hinsegin fjöðrum og lýsa yfir stuðningi við hinsegin fólk á tyllidögum en slíkar yfirlýsingar eru innantómt hjal þegar trans barni er vísað úr landi á þeirra vakt. 

Deila

Facebook
Twitter
Ungir jafnaðarmenn

Nýlegar færslur

Uncategorized @is

Ungt jafnaðarfólk á Landsfundi

Þann 28. – 29. október síðastliðinn var haldinn Landsfundur Samfylkingarinnar – Jafnaðarflokks Íslands á Grand