Ungir jafnaðarmenn ítreka afstöðu sína til þingsetu Björgvins G. Sigurðssonar

Miðstjórn Ungra jafnaðarmanna sendi frá sér ályktun 20. janúar síðastliðinn. Þar hvetja Ungir jafnaðarmenn Björgvin til að stíga til hliðar sem varaþingmaður Samfylkingarinnar uns hann nýtur aftur trausts flokks síns og almennings.

Ungir jafnaðarmenn ítreka afstöðu sína til þingsetu Björgvins G. Sigurðssonar og telja rétt að hann endurnýji umboð sitt til að öðlast traust almennings á ný.

Ályktunina má sjá í heild sinni hér að neðan:

„Ungum jafnaðarmönnum er brugðið vegna frétta sem berast af varaþingmanni Samfylkingarinnar, Björgvini G. Sigurðssyni. Björgvin fór ranglega með opinbera fjármuni í starfi sínu sem sveitarstjóri Ásahrepps og brást þar með trausti almennings.

Mikilvægt er að skattgreiðendur standi í vissu um að opinberir fjármunir séu aðeins notaðir í almannaþágu en renni ekki í vasa opinberra starfsmanna. Í því samhengi skiptir ekki máli hvort að fjármunir eigi að stoppa þar við í styttri eða lengri tíma. Í ljósi þessa hvetja Ungir jafnaðarmenn Björgvin til að stíga til hliðar sem varaþingmaður Samfylkingarinnar uns hann nýtur aftur trausts flokks síns og almennings.

Að lokum vilja Ungir jafnaðarmenn óska Björgvini góðs bata og velfarnaðar.“

Birt 20. janúar 2015

Deila

Facebook
Twitter
Ungir jafnaðarmenn

Nýlegar færslur

Uncategorized @is

Ungt jafnaðarfólk á Landsfundi

Þann 28. – 29. október síðastliðinn var haldinn Landsfundur Samfylkingarinnar – Jafnaðarflokks Íslands á Grand