Stofnfundur „Landnemans“ á sunnudaginn

Landneminn“ er vinnuheiti félags sem stofnað verður nú á sunnudaginn, 15. júní, á Hressó í Austurstræti, Reykjavík.

Fyrir nokkru kviknaði sú hugmynd meðal flokksmanna á höfuðborgarsvæðinu að stofna félag í tengslum við Samfylkinguna sem væri vettvangur fyrir flokksmenn af erlendum uppruna sem og innfædda flokksmenn með áhuga á fjölmenningu, umheiminum og málefnum innflytjenda. Félagið væri þó galopið fyrir óflokksbundna. Nú er þessi hugmynd orðin að veruleika.

Stofnfundurinn á Hressó á sunnudaginn hefst kl. 16, og auk stofnfundarstarfa flytja þar ávörp Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra og formaður Samfylkingarinnar, Hrannar B. Arnarsson formaður innflytjendaráðs og Bjartur Logi Ye Shen, landnemi og bankamaður. Þegar líður á fundinn verða bornar fram veitingar og Leone Tinganelli syngur og leikur ásamt hljómsveit sinni, Delizie Italiane.

Þá verða frumsýndir á fundinum glæsilegir bæklingar á átta tungumálum um stefnu Samfylkingarinnar.

Þriggja manna hópur tók að sér framkvæmdir við stofnfundinn fyrir hönd undirbúningshóps og eru það Bjartur Logi Ye Shen, Kolfinna Baldvinsdóttir og Oddný Sturludóttir.

Mætum öll – látið innflytjendur og aðra áhugamenn um fjölmenningu vita!

Deila

Facebook
Twitter
Ungir jafnaðarmenn

Nýlegar færslur

Uncategorized @is

Ungt jafnaðarfólk á Landsfundi

Þann 28. – 29. október síðastliðinn var haldinn Landsfundur Samfylkingarinnar – Jafnaðarflokks Íslands á Grand