Spennandi dagskrá á aðalfundi UJ-Sel: Í kvöld

Aðalfundur Ungra jafnaðarmanna á Seltjarnarnesi (UJ Sel) verður haldinn mánudaginn 15. september 2008 kl. 20:00 í íþróttahúsinu á Seltjarnarnesi, fundarsal á 2. hæð.

Aðalfundur Ungra jafnaðarmanna á Seltjarnarnesi (UJ Sel) verður haldinn mánudaginn 15. september 2008 kl. 20:00 í íþróttahúsinu á Seltjarnarnesi, fundarsal á 2. hæð.

Dagskrá fundarins er sem hér segir:

1. Afhending fundargagna

2. Setning aðalfundar.

3. Kosning starfsmanna aðalfundar: forseta, fundarritara.

4. Framlagning ársskýrslu.

5. Framlagning ársreikninga.

6. Lagabreytingar.

7. Kosning í embætti.

8. Afgreiðsla ályktana og almennar stjórnmálaumræður.

9. Önnur mál.

10. Fundarslit.

Ágúst Ólafur Ágústsson, varaformaður Samfylkingarinnar, ávarpar samkomuna og Garðar Stefánsson verkefnastjóri kynnir neytendaherferð Ungra jafnaðarmanna:Hugsa fyrst, kaupa svo.

Framboð í stjórn UJ Sel óskast send á Dagbjörtu Hákonardóttur, formann kjörstjórnar, á netfangið dah2@hi.is. Kosið verður í eftirtalin embætti:

Formann, varaformann, ritara, gjaldkera og meðstjórnendur.

Á síðasta landsþingi Ungra jafnaðarmanna var tekin sú ákvörðun að aðildarfélög hreyfingarinnar myndu taka upp sérstök nöfn í fyrsta sinn. Hafa félögin hingað til alla jafna einungis verið kölluð eftir þeim bæjarfélögum sem þau starfa í en nú stendur til að þeim verði gefin nöfn eftir sameiginlegu nafnaþema.

Var ákveðið að þemað myndi vera ,,íslenskar bókmenntapersónur” í víðasta skilningi þeirrar skilgreiningar. Ábendingar að nöfnum eru vel þegnar, hugmyndar óskast sendar á uj@samfylking.is

með upplýsingum um hvaðan viðkomandi nafn sé og stuttum rökstuðningi fyrir tillögunni.

Deila

Facebook
Twitter
Ungir jafnaðarmenn

Nýlegar færslur

Fréttir

Aukalandsþing Ungs Jafnaðarfólks

Aukalandsþing Ungs jafnaðarfólks verður haldið laugardaginn 1. mars núkomandi á Hallveigarstíg 1, Reykjavík. Á þinginu