Sögulegur sigur Samfylkingarinnar

Það eru ekki minni tíðindi að einungis munar um 2,7% stig á Samfylkingunni og Sjálfstæðisflokkunum á landsvísu. Í Reykjavík norður, kjördæmi Davíðs Oddssonar forsætisráðherra, er Samfylkingin meira að segja stærri en Sjálfstæðisflokkurinn. Í kosningunum árið 1999 var Sjálfstæðisflokkurinn um 17% stigum stærri en Samfylkingin í Reykjavík. Samfylkingin vann sögulegan stórsigur í alþingiskosningunum. Í fyrsta skiptið í 70 ár nær annar flokkur en Sjálfstæðisflokkurinn að fara upp fyrir 30%. Samfylkingin hefur breytt hinu pólitíska landslagi. Samfylkingin er því orðin sú kjölfesta og forystuafl í íslenskum stjórnmálum sem að var stefnt.

Til að undirstrika góðan árangur Samfylkingarinnar er Samfylkingin orðin stærsti jafnaðarmannaflokkur á Norðurlöndum að sænska jafnaðarmannaflokkunum undanskildum.

Það eru ekki minni tíðindi að einungis munar um 2,7% stig á Samfylkingunni og Sjálfstæðisflokkunum á landsvísu. Í Reykjavík norður, kjördæmi Davíðs Oddssonar forsætisráðherra, er Samfylkingin meira að segja stærri en Sjálfstæðisflokkurinn. Í kosningunum árið 1999 var Sjálfstæðisflokkurinn um 17% stigum stærri en Samfylkingin í Reykjavík. Össur Skarphéðinsson er því fyrsti þingmaður kjördæmisins og hefur það ekki gerst í háan herrans tíð að sá aðili komi ekki frá Sjálfstæðisflokknum.

Annars staðar á landinu er Sjálfstæðisflokkurinn einnig að tapa miklu en Samfylkingin að bæta við sig. Sjálfstæðisflokkurinn býður því afhroð hvernig sem á það er litið.

Gula spjaldið á ríkisstjórnina
Framsóknarflokkurinn er einnig í sögulegu lágmarki og er tómt mál að tala um samanburð við skoðanakannanir sem hafa verið mjög sveiflukenndar fyrir alla flokka. Fylgi Framsóknarflokksins hefur ekki verið lægra í hartnær aldarfjórðung.
Í fyrsta skiptið síðan frá lýðveldisstofnun er hægt að mynda tveggja flokka ríkisstjórn án Sjálfstæðisflokksins. Ríkisstjórnin er því að fá gula spjaldið frá kjósendum.

Meirihluti Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins hefur aldrei verið jafn lítill og nú. Það er ekki síst Framsóknarmanna að meta þessi skilaboð kjósenda og bregðast við þeim.

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir á afar stóran þátt í sigri Samfylkingarinnar og þótt það hafi verið á brattann að sækja fyrir hana í 5. sæti munaði einungis um 150 atkvæðum að hún kæmist inn sem þingmaður. Af þessu má draga þann lærdóm að hvert atkvæði skiptir máli þótt um sé að ræða fjölmennar alþingiskosningar.

Ný kynslóð á Alþingi
Fyrir utan óumdeildan sigur Samfylkingarinnar í kosningunum er einnig afar ánægjulegt sjá hversu mikið af ungu fólki kemst á þing. Þetta unga fólk kemur úr öllum flokkum og er ljóst að ný kynslóð mun láta að sér kveða á Alþingi Íslendinga. Alþingi hefur lengi verið eftirbátur þjóðþinga hinna Norðurlandaþjóðanna hvað varðar aldursskiptingu en fyrir þessar kosningar var enginn þingmaður undir 37 ára aldur.

Þótt aldur skiptir ekki öllu máli er ljóst að vegna hinnar óæskilegu aldursskiptingar Alþingis hafa málefni ungs fólks s.s. í mennta-, skatta- og húsnæðismálum sitið á hakanum. Nú verður breyting á.

Flestar konur hjá Samfylkingunni og mest endurnýjun
Endurnýjun þingmanna er langmest hjá Samfylkingunni og verður þriðjungur þingflokks Samfylkingar nýr á þingi. Hinn nýi þingflokkur Samfylkingarinnar hefur einna lægstan meðalaldur þingmanna. Samfylkingin hefur hæsta hlutfall kvenna í þingflokknum og nánast önnur hver þingkona á Alþingi á næsta kjörtímabili kemur úr Samfylkingunni. Vegna uppstillinga og prófkjara Sjálfstæðisflokksins biðu konur í Sjálfstæðisflokknum mikinn ósigur í þessum kosningum.

Við sem tókum þátt í kosningabaráttu Samfylkingarinnar erum afskaplega þakklát þeim sem studdu okkur í kosningunum. Kosningabaráttan hefur verið afar spennandi. Allir jafnaðarmenn geta verið mjög ánægðir með úrslitin og þá staðreynd að Samfylkingin er orðin að raunverulegu mótvægi við Sjálfstæðisflokkinn sem kjölfesta nýrra tíma og nýrrar hugsunar.

Deila

Facebook
Twitter
Ungir jafnaðarmenn

Nýlegar færslur

Uncategorized @is

Ungt jafnaðarfólk á Landsfundi

Þann 28. – 29. október síðastliðinn var haldinn Landsfundur Samfylkingarinnar – Jafnaðarflokks Íslands á Grand