RÚV af auglýsingamarkaði

,, Ég er hissa á því að hlutafélag í eigu íslenska ríkisins sé að styrkja sig í baráttunni á íslenskum auglýsingamarkaði með þessum hætti og gerir því öðrum fyrirtækjum erfiðara um vik að selja auglýsingar og í raun breyta landslaginu á auglýsingamarkaðnum. “ Segir Jóhann Jónsson varaformaður ungra jafnaðarmanna á Akureyri.

Ég vil byrja á því að fagna samningi Ríkisútvarpsins ohf. og Björgúlfs Guðmundssonar um að tvöfalda framlag til kaupa á leiknu íslensku efni. Mér finnst frábært að menn skuli sjá sér hag í því að styrkja eins mikilvægt málefni og íslensk leiklist er. Það sem mér hinsvegar gremst er að með þessum samningi er RÚV að styrkja stöðu sína á auglýsingamarkaði og þar um leið að styrkja sig í samkeppni við fyrirtæki á almennum markaði. RÚV getur því boðið upp á meiri íslenska þáttagerð sem eftirsóknarvert er að auglýsa hjá.

Ég er hissa á því að hlutafélag í eigu íslenska ríkisins sé að styrkja sig í baráttunni á íslenskum auglýsingamarkaði með þessum hætti og gerir því öðrum fyrirtækjum erfiðara um vik að selja auglýsingar og í raun breyta landslaginu á auglýsingamarkaðnum. Hvaða sjónvarpsstöð væri ekki tilbúin að fá 2-300 milljónir inn á borð til sín til að kaupa leikið efni og um leið styrkja stöðu sína á auglýsingamarkaði?

Ég vil því sjá RÚV hverfa á brott af auglýsingamarkaði þar sem fyrirtæki í opinberri eigu á ekki að vera í samkeppni við önnur fyrirtæki. Á árinu 2005 var RÚV að taka inn 970.501.090 kr í auglýsingar og kostun samkvæmt ársreikningi stofnuninnar en hann er aðgengilegur á vefnum ruv.is. Brotthvarf RÚV getur aukið samkeppni á markaðnum og getur gert öðrum kleift að komast inn á þennan markað þar sem aðgangshindranir á markaðinn mundu þá minnka. Samtök auglýsenda hafa aftur á móti verið á móti brotthvarfi RÚV af auglýsingamarkaði þar sem það gæti haft í för með sér hækkun auglýsingaverðs. Það getur vel verið svo en þess skal þó alltaf hafa í huga að auglýsandinn hefur val á að auglýsa. Séu menn ósáttir við verðið þá sleppa menn því að auglýsa eða auglýsa frekar annars staðar í öðrum miðlum.

Greinin birtist í dag á vefriti Ungra jafnaðarmanna á Akureyri – UJA.is

Deila

Facebook
Twitter
Ungir jafnaðarmenn

Nýlegar færslur

Uncategorized @is

Ungt jafnaðarfólk á Landsfundi

Þann 28. – 29. október síðastliðinn var haldinn Landsfundur Samfylkingarinnar – Jafnaðarflokks Íslands á Grand