Óhugnanlegt!

Enn berast fréttir af Aroni Pálma Ágústssyni sem hefur setið í fangelsi í Bandaríkjunum frá 1997 fyrir kynferðisbrot í læknisleik þegar hann var ellefu ára. Ellefu ára!! Í ágúst síðastliðnum mælti löggjafarþingið í Texas loksins með því að hann yrði látinn laus og nú á ríkisstjórinn einn, Rick Perry, eftir að leggja blessun sína yfir það. Í þessum svifum stefnir Ríta – þegar orðin þriðji öflugasti fellibylur sögunnar – í átt að bænum Beaumont í Texas þar sem Aron Pálmi situr í stofufangelsi. Á meðan Aroni er bannað að fara frá Beaumont er öllum öðrum skipað að fara þaðan. Enn berast fréttir af Aroni Pálma Ágústssyni sem hefur setið í fangelsi í Bandaríkjunum frá 1997 fyrir kynferðisbrot í læknisleik þegar hann var ellefu ára. Ellefu ára!! Í ágúst síðastliðnum mælti löggjafarþingið í Texas loksins með því að hann yrði látinn laus og nú á ríkisstjórinn einn, Rick Perry, eftir að leggja blessun sína yfir það.

Í þessum svifum stefnir Ríta – þegar orðin þriðji öflugasti fellibylur sögunnar – í átt að bænum Beaumont í Texas þar sem Aron Pálmi situr í stofufangelsi. Á meðan Aroni er bannað að fara frá Beaumont er öllum öðrum skipað að fara þaðan.

Á hvaða leið er Villta vestrið eiginlega?

Nú verður að vona að íslensk stjórnvöld sýni mannúð og náungakærleik í verki og beiti sér af alefli áður en það er um seinan.

Deila

Facebook
Twitter
Ungir jafnaðarmenn

Nýlegar færslur

Fréttir

Aukalandsþing Ungs Jafnaðarfólks

Aukalandsþing Ungs jafnaðarfólks verður haldið laugardaginn 1. mars núkomandi á Hallveigarstíg 1, Reykjavík. Á þinginu