Landsþing UJ 2006 – Tilkynning frá kjörstjórn

Kjörstjórn Ungra jafnaðarmanna auglýsir eftir framboðum í embætti sem verður kosið um á landsþingi UJ sem haldið verður helgina 16.- 17. september.

Kjörstjórn Ungra jafnaðarmanna auglýsir eftir framboðum í embætti sem verður kosið um á landsþingi UJ

Kjörstjórn Ungra jafnaðarmanna auglýsir hér með eftir framboðum í eftirfarandi embætti, sem kosið verður um á landsþingi Ungra jafnaðarmanna sem haldið verður í Mosfellsbæ helgina 16.- 17. september.

1) Formaður
2) Varaformaður
3) Ritari
4) Gjaldkeri
5) Alþjóðaritari
6) Fjórir meðstjórnendur
7) Sex varamenn
8) Tveir endurskoðendur reikninga
9) Þrír fulltrúar í lagaskýringarnefnd

Formaður, varaformaður, ritari, gjaldkeri, alþjóðaritari og fjórir meðstjórnendur sitja allir með atkvæðisrétt í framkvæmdastjórn Ungra jafnaðarmanna.

Skv. heimildum kjörstjórnar í 2. mgr. 13. gr. laga Ungra jafnaðarmanna tilkynnist hér með að framboðsfrestur rennur út kl. 18.00 þann 6. september 2006.

Komi aðeins eitt framboð í hvert embætti, telst sjálfkjörið í það. Miðað er við að skrifleg atkvæðagreiðsla fari fram í öll embætti. Auglýsing um nákvæma tímasetningu og tilhögun kosninga verður birt síðar.

Afla má frekari upplýsinga í lögum Ungra jafnaðarmanna sem birt eru á Pólitik.is, eða með því að senda kjörstjórnarmeðlimum tölvupóst.

Framboð skulu berast Jens Sigurðssyni, formanni kjörstjórnar á netfangið jenssigurdsson@gmail.com

Gjört í Reykjavík, 16. ágúst 2006

Jens Sigurðsson, formaður kjörstjórnar
Hrafn Stefánsson
og Ólöf Halldóra Þórarinsdóttir

Deila

Facebook
Twitter
Ungir jafnaðarmenn

Nýlegar færslur

Fréttir

Aukalandsþing Ungs Jafnaðarfólks

Aukalandsþing Ungs jafnaðarfólks verður haldið laugardaginn 1. mars núkomandi á Hallveigarstíg 1, Reykjavík. Á þinginu