Jens Sigurðsson gefur kost á sér

Jens Sigurðsson formaður UJK og fyrrverandi framkvæmdastjóri UJ á landsvísu hefur ákveðið að gefa kost á sér í prófkjöri Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi. Jens Sigurðsson, formaður Ungra jafnaðarmanna í Kópavogi, hefur ákveðið að gefa kost á sér í 4. sæti í prófkjöri Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi sem haldið verður 4. nóvember.

Jens er 28 ára stjórnmálafræðingur frá George Washington háskóla í Washington DC en stundaði einnig nám í Norður Karólínu háskóla í Wilmington. Jens hefur gegnt ýmsum trúnaðarstörfum undanfarin ár fyrir Unga jafnaðarmenn og Samfylkinguna.

Um tveggja ára skeið var Jens framkvæmdastjóri Framtíðarhóps Samfylkingarinnar sem og framkvæmdastjóri Ungra jafnaðarmanna á landsvísu. Hann hefur verið formaður Ungra jafnaðarmanna í Kópavogi síðan haustið 2004. Hann sat í kosningastjórn Samfylkingarinnar í Kópavogi í vor og er fulltrúi Samfylkingarinnar í Atvinnu- og upplýsinganefnd Kópavogsbæjar.

Jens er kvæntur Jónu Björk Gísladóttur og saman eiga þau einn son.

Deila

Facebook
Twitter
Ungir jafnaðarmenn

Nýlegar færslur

Fréttir

Ný stjórn kjörin á landsþingi UJ

Landsþing Ungs jafnaðarfólks var haldið á laugardaginn, 31. ágúst 2024 í Samfylkingarhúsinu íHafnarfirði, Strandgötu 43.

Fréttir

Jöfn og Frjáls komið út

Jöfn og Frjáls er komið út. Blaðið sem er málgagn Ungs Jafnaðarfólks hefur nú verið