Íslenskir friðarsinnar standa að blysför niður Laugaveginn á Þorláksmessu

Friðargangan á Þorláksmessu er nú orðin fastur liður í jólaundirbúningi margra. Gangan í ár er sú tuttugasta og sjöunda í röðinni. Fréttatilkynning frá Samstarfshópi friðarhreyfinga

Safnast verður saman á Hlemmi og leggur gangan af stað stundvíslega klukkan 18:00. Fólk er hvatt til að mæta tímanlega. Friðargangan á Þorláksmessu er nú orðin fastur liður í jólaundirbúningi margra. Gangan í ár er sú tuttugasta og sjöunda í röðinni. Að venju munu friðarhreyfingarnar selja kyndla á Hlemmi í upphafi göngunnar.
 
Söngfólk úr Hamrahlíðarkórnum og Kór Menntaskólans í Hamrahlíð undir stjórn Þorgerðar Ingólfssonar kórstjóra tekur að vanda þátt í blysförinni sem endar með stuttum fundi á Lækjartorgi.

Þar mun Falasteen Abu Libdeh frá Palestínu halda stutt ávarp. Fundarstóri verður Arnar Jónsson leikari. Fundinum lýkur síðan með friðarsöng.
 
Friðargöngur  verða einnig á Akureyri og Ísafirði á Þorláksmessukvöld.
 
_______________
 

Samstarfshópur friðarhreyfinga:
 
Félag leikskólakennara
Friðar- og mannréttindahópur BSRB
Menningar og friðarsamtök íslenskra kvenna
SGI á Íslandi (Friðarhópur búddista)
Samtök hernaðarandstæðinga

Deila

Facebook
Twitter
Ungir jafnaðarmenn

Nýlegar færslur

Uncategorized @is

Ungt jafnaðarfólk á Landsfundi

Þann 28. – 29. október síðastliðinn var haldinn Landsfundur Samfylkingarinnar – Jafnaðarflokks Íslands á Grand