Hallveig heldur forprófkjör 11.-13. desember 2025

Hvað er forprófkjör? 

Forprófkjör er kosning þar sem að félagar Hallveigar, ungs jafnaðarfólks í Reykjavík, munu kjósa tvo einstaklinga sem verða fulltrúar ungs fólks í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík. 

Hvenær er forprófkjörið? 

Forprófkjörið hefst þann 11. desember kl. 23:59 og því lýkur þann 13. desember kl. 17:00. 

Hver geta kosið?

Allir skráðir flokksfélagar Samfylkingarinnar á aldrinum 15-35 ára sem eru með lögheimili í Reykjavík hafa kosningarétt í forprófkjörinu. Skráning í flokkinn þarf að berast fyrir kl. 23:59 10. desember 2025. 

Hvernig er kosið?

Kosningin er rafræn. Útfærsla verður tilkynnt síðar. 

Hver geta boðið sig fram? 

Forprófkjörið er fyrir alla skráða flokksfélaga Samfylkingarinnar sem eru með lögheimili í Reykjavík og eru á aldrinum 18-35 ára. Skila þarf minnst 10 og mest 20 undirskriftum til stuðnings framboðsins til kjörstjórnar. Meðmæli má gefa rafrænt eða með eiginhandarundirritun á blaði. Framboðsfrestur rennur út 2. desember 2025 kl. 23:59 og þurfa frambjóðendur að vera búnir að skila meðmælendalista þegar frestur til framboðs rennur út.