Grænir tónleikar

Framtíðarlandið blæs í alla herlúðra daginn fyrir kosningar og býður þjóðinni til tónleika á Nasa við Austurvöll undir yfirskriftinni GRÆN FRAMTÍÐ? Meðal þeirra sem koma fram er hljómband Ungs Samfylkingarfólks – Sprengjuhöllin – sem og Benni Hemm Hemm, Bogomil Font & Flís, Mr. Silla & Mongoose, Retro Stefson og Hjaltalín. Framtíðarlandið blæs í alla herlúðra daginn fyrir kosningar og býður þjóðinni til tónleika á Nasa við Austurvöll undir yfirskriftinni GRÆN FRAMTÍÐ? Niðurstöður kosninganna munu ráða miklu um framtíðarmöguleika græns Íslands og Framtíðarlandið vill með tónleikunum hvetja alla þá sem unna náttúru Íslands og vilja fjölbreytt atvinnulíf að haga atkvæði sínu eftir því.

Tónleikarnir marka jafnframt lok átaks Framtíðarlandsins í tengslum við Sáttmála um framtíð Íslands .

Á tónleikunum kemur fram einvalalið íslenskra tónlistarmanna og hljómsveita, en þær eru:

  • Sprengjuhöllin
  • Benni Hemm Hemm
  • Bogomil Font & Flís
  • Mr. Silla & Mongoose
  • Retro Stefson
  • Hjaltalín
  • Bob Justman
  • DJ Musician


Dagskrá tónleikanna hefst klukkan 21.00 og stendur langt fram eftir nóttu. Húsið opnar 20.00.

Aðgangseyrir er enginn en aldurstakmark er 18 ár.

Deila

Facebook
Twitter
Ungir jafnaðarmenn

Nýlegar færslur

Fréttir

Ný stjórn kjörin á landsþingi UJ

Landsþing Ungs jafnaðarfólks var haldið á laugardaginn, 31. ágúst 2024 í Samfylkingarhúsinu íHafnarfirði, Strandgötu 43.

Fréttir

Jöfn og Frjáls komið út

Jöfn og Frjáls er komið út. Blaðið sem er málgagn Ungs Jafnaðarfólks hefur nú verið