Fréttatilkynning vegna mótmælanna í gær

Fréttatilkynning frá ungliðahreyfingum Samfylkingarinnar, Vinstri grænna, Framsóknar og ungra stuðningsmanna Margrétar Sverrisdóttur.

Fréttatilkynning frá ungliðahreyfingum Samfylkingarinnar, Vinstri grænna, Framsóknar og ungra stuðningsmanna Margrétar Sverrisdóttur.

Hátt í þúsund Reykvíkingar tóku þátt í mótmælunum sem fram fóru í Ráðhúsi Reykjavíkur í dag (gær). Magnað var að sjá þann fjölda almennra borgara á öllum aldri sem mættu til að láta í ljós hversu mjög Reykvíkingum er misboðið. Ungliðahreyfingunum sem efndu til mótmælanna finnst ekki síst ánægjulegt að sjá hversu margir mættu á eigin vegum til að láta í ljós óánægju sína.

Krafan fyrir fundinn var að hætt yrði við myndun hins nýja óstarfahæfa meirihluta. Hvergi verður kvikað frá þeirri kröfu. Vilja hreyfingarnar beina því til einstaklinga innan nýja meirihlutans, sem nýtur stuðnings innan við fjórðungs borgarbúa samkvæmt nýlegri könnun, að skynsamlegast væri að sjá að sér og hætta við.

Atburðurinn í ráðhúsinu í dag var sögulegur. Bæði var sögulegt að sjá rödd hins almenna borgarbúa mótmæla svo kröftuglega, og því miður var einnig sögulegt að horfa upp hryggilegar aðfarir hins nýja meirihluta. Það er sorglegt að fyrsta verk hins nýja meirihluta hafi verið að þagga niður í þeim sem komu til að tjá skoðun sína á nýjum meirihluta. Við hvetjum alla Reykvíkinga til að sýna áfram samstöðu gegn honum.

Deila

Facebook
Twitter
Ungir jafnaðarmenn

Nýlegar færslur

Fréttir

Ný stjórn kjörin á landsþingi UJ

Landsþing Ungs jafnaðarfólks var haldið á laugardaginn, 31. ágúst 2024 í Samfylkingarhúsinu íHafnarfirði, Strandgötu 43.

Fréttir

Jöfn og Frjáls komið út

Jöfn og Frjáls er komið út. Blaðið sem er málgagn Ungs Jafnaðarfólks hefur nú verið