Fólkið og félögin

VANTAR TEXTA!

Ungir jafnaðarmenn er nafn ungliðahreyfingar Samfylkingarinnar og var hreyfingin stofnuð 11. mars 2000. Hreyfingin er opinn og lýðræðislegur vettvangur fyrir skapandi umræður og félagsstarf ungs jafnaðar- og félagshyggjufólks.

Hreyfingin hefur það markmið að efla nýsköpun og frumkvæði ungs jafnaðar- og félagshyggjufólks með því að stofna til víðtækra skoðanaskipta, umræðu og málefnavinnu, einkum í málaflokkum er varða ungt fólk og byggja á grunnhugmyndum jafnaðarstefnunnar um frelsi, jafnrétti, og bræðralag.

Þá hefur hreyfingin það markmið að auka samskipti og samkennd ungs jafnaðar- og félagshyggjufólks með öflugu félagsstarfi og útgáfu.

Ungir jafnaðarmenn aðhyllast lýðræðislegt þjóðskipulag byggt á virkri þátttöku almennings, valddreifingu, fyllstu mannréttindum og félagslegu réttlæti.

Aðild að Ungum jafnaðarmönnum geta öll félög og málefnahópar átt, svo framarlega sem meðlimir félaganna/hópanna sé fólk á aldrinum 16 til 35 ára sem vill vinna að framgangi félagshyggju og jafnaðarstefnu og gangast undir lög Ungra jafnaðarmanna.

Alls hafa verið stofnuð fimmtán aðildarfélög að Ungum jafnaðarmönnum: í Reykjavík, í Kópavogi, í Hafnarfirði, í Mosfellsbæ, á Suðurnesjum, á Suðurlandi, í Hveragerði, á Akranesi, á Austurlandi, í Vestmannaeyjum, á Ísafirði, á Siglufirði, í Þingeyjarsýslum, í Garðarbæ og á Seltjarnarnesi. Æðsta vald samtakanna er í höndum landsfundar, en þess á milli hvílir ákvörðunarvald hjá miðstjórn og framkvæmdavald hreyfingarinnar hjá framkvæmdastjórn Ungra jafnaðarmanna.