Eins og margir hafa rekið augun í og heyrt af í fréttum undanfarið hefur einn helsti siðfræðingur þjóðarinnar, Stefán Einar Stefánsson, verið að tjá sig um siðbótina í íslenskri pólitík. Eða eins og vitnað er í þennan meistara á Pressan.is, þegar að hann sagði sig úr stjórn SUS eftir að upp komst um styrkjamálið stóra frá Baugi og Bjöggunum:
„Ef hugur fylgdi máli og lögunum ætlað að tryggja sjálfstæði stjórnmálaflokka gagnvart viðskiptalífinu og fjársterkum einstaklingum, fól viðtaka styrkjanna í sér aðför að því markmiði.“
Þetta eru auðvitað orð í tíma sögð!
Nú hafa hins vegar einhverjir sjálfsumglaðir, latté-lepjandi vinstrimenn verið að væla um það að þetta hafi verið sá aðili sem leigði Fokker flugvél til að ferja um 50 manns á landsþing SUS á Ísafirði á síðasta ári.
Hvaða máli skiptir það? Má maðurinn ekki nota sína peninga í það sem hann vill? Ef fjársterkur aðili er tilbúin til að greiða fleiri hundruð þúsund í leigu á flugvél til að fá völd í ungliðahreyfingu, hvað er þá að því…?