Einstök samstaða ungliðahreyfinganna

Í gærkvöldi var haldinn opinn fundur allra ungliðahreyfingana í Reykjavík um frumvarp mitt um afnám fyrningarfresta á kynferðisbrotum gegn börnum. Það er óneitanlega mjög sérstakt að allar ungliðahreyfingar skuli standa saman að fundi sem þessum með það fyrir augum að beina kastljósinu að einu tilteknu máli og er ég þeim afar þakklátur fyrir þennan stuðning. Vonandi hefur samstaða ungliðahreyfinganna áhrif á framvindu málsins en þessi vinnubrögð ungliðahreyfinganna verða að teljast þeim mjög til framdráttar. Ljóst er að málefni, frekar en flokkadrættir hafa ráðið för sem er vitaskuld mjög af hinu góða. Í gærkvöldi var haldinn opinn fundur allra ungliðahreyfingana í Reykjavík um frumvarp mitt um afnám fyrningarfresta á kynferðisbrotum gegn börnum. Það er óneitanlega mjög sérstakt að allar ungliðahreyfingar skuli standa saman að fundi sem þessum með það fyrir augum að beina kastljósinu að einu tilteknu máli og er ég þeim afar þakklátur fyrir þennan stuðning. Vonandi hefur samstaða ungliðahreyfinganna áhrif á framvindu málsins en þessi vinnubrögð ungliðahreyfinganna verða að teljast þeim mjög til framdráttar. Ljóst er að málefni, frekar en flokkadrættir hafa ráðið för sem er vitaskuld mjög af hinu góða. Skemmst er frá því að segja að á Þingi unga fólksins var einnig samþykkt ályktun þess efnis að afnema skuli fyrningarfresti í kynferðisafbrotum gegn börnum.

Óskandi að frumvarpið verði afgreitt úr nefnd
Ég hef nú lagt frumvarpið öðru sinni, en í fyrra var málið ekki afgreitt úr Allsherjarnefnd og þingmönnum því ekki gefið færi á að taka afstöðu til málsins. Óskandi er að frumvarpið komist úr nefndinni í ár þannig að þingmenn geti kosið um málið.

Nú þegar til ófyrnanleg afbrot
Í frumvarpinu er lagt til að fyrningarfrestir vegna kynferðisbrota gegn börnum verði afnumdir. Helstu rök fyrir því eru þau, eins og við höfum því miður ítrekað heyrt í fréttum, að kynferðisbrotamenn hafa verið sýknaðir af kynferðisbrotum gegn börnum jafnvel þó sekt þeirra sé sönnuð sakir þess að brotin hafa verið talin fyrnd. Staðreyndin er sú að þessi brot komast oft ekki upp fyrr en löngu eftir að þau eru framin, ólíkt mörgum öðrum afbrotum og á þessari aðstöðu hagnast gerandi brotanna. Börn eru sérlega viðkvæmur hópur og refsivernd þeirra er að mínu mati ekki nægilega sterk þegar sú er raunin að mun erfiðara er að ná fram sektardómum í brotum gegn þeim, vegna fyrningarregla.

Hafa verður í huga að nú þegar eru til afbrot sem eru ófyrnanleg og því er það einfaldlega pólitískt mat hvort menn telji að kynferðisbrot gegn börnum teljist til þeirra brota sem ekki fyrnast. Fyrir mitt leyti er augljóst að svo eigi að vera. Nú þegar má nefna að manndráp, ítrekuð rán og landráð eru í flokki ófyrnanlegra brota.

Undirskriftarsöfnun í gangi á blattafram.is
Enn er hægt að skrá áskorun til þingmanna á www.bláttáfram.is um að samþykkja umrædd frumvarp en nú þegar eru komnar tæplega 10.000 undirskriftir sem verður að teljast frábær áhugi sem sýnir mikinn vilja til að breytingar verði gerðar í þá átt að afnema fyrningu í kynferðisafbrotum gegn börnum.

Deila

Facebook
Twitter
Ungir jafnaðarmenn

Nýlegar færslur

Uncategorized @is

Ungt jafnaðarfólk á Landsfundi

Þann 28. – 29. október síðastliðinn var haldinn Landsfundur Samfylkingarinnar – Jafnaðarflokks Íslands á Grand