Ég fíla Borgarahreyfinguna á þingi

Jafnvel örlaði á að ég hugsaði: „Þið verðið að skilja að svona er þetta bara! Ég hef ekkert gaman af því sjálf heldur“ – í tón sem maður myndi kannski nota á barnið sitt sem neitar að vakna snemma til að mæta í skólann á svörtum morgni.

Leiðari dagsins er ekki skrifaður út af neinu sérstöku sem Borgarahreyfingin hefur tekið sér fyrir hendur undanfarna daga. Heldur ekki til að bregðast við ásökunum um að það sé lélegt af mér að standa ekki á Austurvelli og mótmæla núna, líkt og ég gerði í vetur.

Leiðarinn er frekar skrifaður í kjölfar pirringskasts sem undirrituð tók yfir einhverjum kröfum frá „þjóðinni“. Yfir að óþreyjufullir Íslendingar geti ekki skilið að flokkssystkin mín í ríkisstjórn ásamt VG eru á haus í vinnu í erfiðustu aðstæðum sem ríkisstjórn hefur þurft að takast við á þessu landi. Að enginn sé fullkominn en það sé verið að gera sitt besta. Að það sé víst búið að gera fullt og taka helling af ákvörðunum á stuttum tíma. Jafnvel örlaði á að ég hugsaði: „Þið verðið að skilja að svona er þetta bara! Ég hef ekkert gaman af því sjálf heldur“ – í tón sem maður myndi kannski nota á barnið sitt sem neitar að vakna snemma til að mæta í skólann á svörtum morgni.

Pirringskastið fékk mig síðan til að skammast mín. Það er svo stutt á milli þess að vera fullorðni, ábyrgi aðilinn sem þarf að fást við raunveruleikann – og þess að vera kerfiskelling sem setur upp inflúensugrímu þegar frjókorn skapandi og gagnrýnnar hugsunar berast í vitin.

Borgarahreyfingin er örugglega broddfluga sem einhvern tímann á eftir að fá mig eða flokkssystkinin til að gnísta tönnum og skyrpa út um þær einhverju um ósanngjarna og óábyrga gagnrýni á stjórn efnahagsmála. En ég sem hóf afskipti af stjórnmálum vegna margs þess sem Borgarahreyfingin stendur fyrir, ég fíla að hún eigi fulltrúa inni á þingi sem neita að vera of raunsæir þegar kemur að lýðræðisumbótum á Íslandi.

Deila

Facebook
Twitter
Ungir jafnaðarmenn

Nýlegar færslur

Uncategorized @is

Ungt jafnaðarfólk á Landsfundi

Þann 28. – 29. október síðastliðinn var haldinn Landsfundur Samfylkingarinnar – Jafnaðarflokks Íslands á Grand