D-listinn og leikskólamál

Í nýlegu svari heilbrigðisráðherra við fyrirspurn minni á Alþingi um ferðir barna til tannlækna kemur margt fróðlegt í ljós.Þar kemur fram að tæp 2.000 börn, 6 ára og eldri, hafa aldrei farið til tannlæknis. Tæplega 9.000 börn hafa ekki farið til tannlæknis síðastliðin þrjú ár og um 12.000 börn hafa ekki farið til tannlæknis undanfarin tvö ár. Tæp 35.000 börn hafa ekki farið til tannlæknis í eitt ár. Séu yngstu börnin tekin frá þá er fjöldi þessara barna tæp 23.000.

Eitt mikilvægasta málefni þessara borgarstjórnarkosninga er loforð Samfylkingarinnar um gjaldfrjálsan leikskóla. Í leikskólamálum endurspeglast sá grundvallarmunur sem er á hugmyndafræði Samfylkingarinnar annars vegar og Sjálfstæðisflokksins hins vegar.

Samfylkingin vill gjaldfrjálsan leikskóla líkt og grunnskólinn er, enda er leikskólinn fyrsta skólastigið og eðlilegt að hann sé börnum gjaldfrjáls eins og grunnskólinn.

Gjaldfrelsi eða afsláttur?
Sjálfstæðisflokkurinn vill hins vegar áframhaldandi skólagjöld á þessu fyrsta skólastigi og vill eingöngu lækkun á þessum skólagjöldum leikskólabarna. Sú leið færir foreldrum hins vegar talsvert minni kjarabót. Því fer fjarri að tillögur flokkanna tveggja séu jafn verðmætar fyrir almenning. Leið Sjálfstæðisflokksins skilar barnafólki mun minni kjarabót, enda er aðeins um að ræða afslátt en ekki gjaldfrelsi líkt og Samfylkingin boðar.

Í umræðu um stefnu flokkanna í leikskólamálum er eins og þessar tvær tillögur færi almenningi jafnmikla kjarabót. Raunveruleikinn er hins vegar sá að það er himinn og haf á milli þessarar kosningaloforða.

Forysta Sjálfstæðisflokks andvíg gjaldfrjálsum leikskóla
Vert er að rifja upp afstöðu menntamálaráðherra og varaformanns Sjálfstæðisflokksins, Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, til gjaldfrjáls leiksskóla. Ég ræddi gjaldfrjálsan leikskóla á Alþingi fyrir tveimur árum síðan og spurði menntamálaráðherra að því hvort hún teldi þá leið koma til greina. Ráðherrann hafnaði gjaldfrjálum leiksskóla með þeim orðum að það væru “engar efnahagslegar forsendur fyrir því að gera leikskólann gjaldfrjálsan.”

Stefna Sjálfstæðisflokks er sú að hafna gjaldfrjálsum leikskóla í þessum kosningum og ekkert útlit er fyrir að breyting verði á þeirri stefnu í bráð.

Deila

Facebook
Twitter
Ungir jafnaðarmenn

Nýlegar færslur

Uncategorized @is

Ungt jafnaðarfólk á Landsfundi

Þann 28. – 29. október síðastliðinn var haldinn Landsfundur Samfylkingarinnar – Jafnaðarflokks Íslands á Grand