Aukalandsþing Ungs jafnaðarfólks verður haldið laugardaginn 1. mars núkomandi á Hallveigarstíg 1, Reykjavík.
Á þinginu verður meðal annars kosið um breytingar á stefnu Ungs jafnaðarfólks og stöður í framkvæmdastjórn UJ.
Nánari upplýsingar má nálgast á Facebook viðburði aukalandsþingsins -> hér!
Skráning á aukalandsþing er -> hér!
Stefnuna má nálgast -> hér!
Hér fyrir neðan má nálgast stefnubreytingarform sem sendist útfyllt á forseti@uj.is
Frestur til að skila breytingartillögum á stefnu UJ er til og með kl. 11:00 miðvikudaginn 26. febrúar.
Tillögur sem berast eftir þann tíma verða ekki teknar fyrir á þinginu. Hægt er að bera upp munnlega breytingartillögu á breytingartillögu á þinginu en þarf hún að snúa að efni upprunalegu breytingartillögunnar til þess að hún verði tekin fyrir.
Dagskrá:
11:00-11:15 Setning aukalandsþings
11:15-11:30 Kynning á fyrirkomulagi
11:30:12:15 Vinnustofa 1 – Alþjóðastefna og Mennta- og menningarstefna
12:15-12:45 Hádegispása
12:45-13:30 Vinnustofa 2 – Utanríkisstefna og Samgöngu- og sveitarstjórnarstefna
13:30-14:15 Vinnustofa 3 – Mannréttinda- og lýðræðisstefna og Umhverfisstefna
14:15-14:30 Kaffipása
14:30-15:15 Vinnustofa 4 – Húsnæðis- og velferðarstefna og Viðskipta- og efnahagsstefna
15:15-15:45 Kaffipása
15:45-17:00 Afgreiðsla tillagna pakka
17:00-18:00 Kosning framkvæmdastjórnar
18:00-18:15 Aukaandsþingi slitið
Við hvetjum allt Ungt jafnaðarfólk til þess að mæta!





