[Ályktun] Viðurkennum alla Íslendinga

Frumvarp þetta er stórt skref í átt að bættum lífskjörum þess hóps sem talar íslenskt táknmál. Það er von Ungra jafnaðarmanna að á komandi kjörtímabili hugi Alþingi að þessu mikilvæga máli sem oftar en ekki verður undir í umræðunni. Ungir jafnaðarmenn, ungliðahreyfing Samfylkingarinnar, telja það mikil vonbrigði að frumvarpi til laga um íslenska táknmálið hafi ekki verið afgreidd sem lög á nýliðnu þingi. Það að alþingismenn geti ekki viðurkennt íslenska táknmálið sem fyrsta mál heyrnarlausra, heyrnarskertra og daufblindra Íslendinga er til skammar fyrir land og þjóð. Þannig hafa ráðamenn þjóðarinnar kosið að hundsa þennan þjóðfélagshóp með því að rjúfa ekki þá einangrun sem hefur heft hópinn í langan tíma. Frumvarp þetta er stórt skref í átt að bættum lífskjörum þess hóps sem talar íslenskt táknmál. Það er von Ungra jafnaðarmanna að á komandi kjörtímabili hugi Alþingi að þessu mikilvæga máli sem oftar en ekki verður undir í umræðunni. Ungir jafnaðarmenn vilja viðurkenna rétt allra Íslendinga.

Deila

Facebook
Twitter
Ungir jafnaðarmenn

Nýlegar færslur

Uncategorized @is

Ungt jafnaðarfólk á Landsfundi

Þann 28. – 29. október síðastliðinn var haldinn Landsfundur Samfylkingarinnar – Jafnaðarflokks Íslands á Grand