Ályktun Ungra jafnaðarmanna vegna rasískra ummæla innviðaráðherra í garð framkvæmdastjóra Bændasamtakanna

 

Ungir jafnaðarmenn fordæma harkalega þau ummæli sem innviðaráðherra lét falla í flokkaboði Framsóknarflokksins í tengslum við Búnaðarþing 2022. Ummælin beindust að framkvæmdastjóra Bændasamtaka Íslands, Vig­dísi Häsler, og fólu í sér niðrandi orðaval um húðlit hennar

Ungir jafnaðarmenn standa með Vigdísi Häsler, trúa hennar frásögn og annarra starfsmanna Bændasamtakanna og krefjast afsagnar innviðaráðherra sem sýndi með orðum sínum rasískt viðhorf sem á ekki að viðgangast í íslensku samfélagi. Ungir jafnaðarmenn fordæma jafnframt framkomu aðstoðarmanns ráðherra í málinu sem neitaði því að ummælin hefðu fallið, veitti fjölmiðlum misvísandi upplýsingar og gerði þar með lítið úr ummælunum og upplifun Vigdísar sem ummælin beindust að.

Óumflýjanlegt er að setja ummælin í samhengi við rasíska kosningabaráttu Framsóknarflokksins í borgarstjórnarkosningum árið 2014 og tilraunir ríkisstjórnarinnar til að herða enn á útlendingalöggjöf í landinu. Þá furða Ungir jafnaðarmenn sig á framgöngu forsætisráðherra, sem fer með jafnréttis- og mannréttindamál í ríkisstjórn, en í dag vék hún sér undan því að svara spurningum um hvort ummæli innviðaráðherra samræmdust siðareglum ráðherra í óundirbúnum fyrirspurnatíma á Alþingi. Það eru vonbrigði að forsætisráðherra Íslands taki ekki afdráttarlausa afstöðu gegn rasisma.