Ungir jafnaðarmenn krefjast þess að lausatökum stjórnarflokkanna í sóttvarnamálum linni og að Alþingi
komi saman án tafar svo renna megi skýrum lagastoðum undir nauðsynlegar sóttvarnir á landamærunum.
Undanfarin misseri hafa vinnubrögð ríkisstjórnarinnar einkennst af hringli, flumbrugangi og samráðsleysi
við sóttvarnayfirvöld. Þetta hefur sett sóttvarnir í uppnám og grafið undan sátt og samstöðu í samfélaginu.
Alvarlegasta dæmið er nýlegur dómur Héraðsdóms Reykjavíkur um ólögmæta skyldudvöl í sóttvarnahúsi.
Dómurinn og afleiðingar hans skrifast alfarið á ríkisstjórnina, ráðherra heilbrigðismála og tregðu
stjórnarmeirihlutans á Alþingi til að axla pólitíska ábyrgð á sóttvarnaráðstöfunum og binda nauðsynlegar
valdheimildir í lög þrátt fyrir ítrekaðar ábendingar stjórnarandstöðu.
Sóttvarnalæknir lýsti í gær áhyggjum sínum af því að smit kunni að berast til landsins og leiða til nýrrar
bylgju faraldursins hér á landi vegna ófullnægjandi sóttvarna á landamærunum.
Nú er mál að linni. Ungir jafnaðarmenn taka undir kröfur sóttvarnalæknis og Læknafélags Íslands um að
lagastoð fyrir ýtrustu sóttvörnum á landamærunum verði tryggð svo heilsu, frelsi og efnahagslegum
hagsmunum landsmanna verði ekki stefnt í voða. Til þess þarf að kalla þingheim úr páskafríi tafarlaust.
Á meðan ríkt hefur víðtæk samstaða meðal landsmanna um nauðsynlegar sóttvarnir hafa þingmenn
Sjálfstæðisflokksins hamast gegn sóttvarnareglum og ráðherrar flokksins brotið þær. Sundurlyndi og
ábyrgðarleysi þingmanna Sjálfstæðisflokksins má ekki standa sóttvörnum í landinu fyrir þrifum.
Ungir jafnaðarmenn ítreka ákall sitt frá því í desember um að mynduð verði starfsstjórn ábyrgari
stjórnmálaflokka fram að næstu Alþingiskosningum um stærstu hagsmunamál þjóðarinnar á þessum
örlagatímum: öflugar sóttvarnir, öflun bóluefna og markvissari stuðning við atvinnuleitendur og þær
atvinnugreinar sem hafa orðið verst úti í heimsfaraldrinum.