Ályktun Ungra Jafnaðarmanna vegna Dirty Night

Ungir jafnaðarmenn lýsa yfir ánægju sinni með ákvörðun Jafnréttis- og mannréttindaráðs Kópavogsbæjar um að leggja fram kæru á hendur skemmtanahaldara Players og umboðsskrifstofunni agent.is vegna Dirty night sem fram fór á laugardagskvöldið síðasta. Þá harma Ungir jafnaðarmenn jafnframt þá miklu auglýsingu sem þessi viðburður hefur fengið í fjölmiðlum. Viðburðir af þessu tagi ýta undir kynjaðar staðalmyndir, hlutgera stúlkur og konur, og koma inn óheilbrigðum hugmyndum um hlutverk kynjanna hjá ungu fólki. Þá leggja Ungir jafnaðarmenn einnig áherslu á að einstaklingsfrelsi eins má aldrei vera svo mikið að það skerði einstaklingsfrelsi annars.

Deila

Facebook
Twitter
Ungir jafnaðarmenn

Nýlegar færslur

Fréttir

Aukalandsþing Ungs Jafnaðarfólks

Aukalandsþing Ungs jafnaðarfólks verður haldið laugardaginn 1. mars núkomandi á Hallveigarstíg 1, Reykjavík. Á þinginu