[Ályktun] Ungir jafnaðarmenn vilja efla möguleika fólks á að mennta sig í heimabyggð

Ungir jafnaðarmenn telja mikilvægt að styðja við nám á landsbyggðinni. Það að geta menntað sig í sinni heimabyggð gerir það að verkum að fólk getur frekar búið þar. Tækifærin hefur hins vegar skort til að stunda þá vinnu eða menntun sem fólk hefur áhuga á. Undanfarin ár hefur flótti frá landsbyggðinni til höfuðborgarsvæðisins verið mikill. Menntað fólk utan af landi sækir frekar í búsetu á höfuðborgarsvæðinu þar sem oft getur reynst erfitt að finna atvinnu við hæfi á landsbyggðinni.

Ungir jafnaðarmenn eru víðsýnt félag sem gerir sér grein fyrir mikilvægi þess að landið sé í byggð. Ungir jafnaðarmenn eru fylgjandi jöfnuði, óháð kynferði, kynhneigð, litarhætti eða búsetu. Því er mikilvægt að fólk sem kýs að búa úti á landi fái sömu tækifæri og aðrir landsmenn.

Ungir jafnaðarmenn telja mikilvægt að styðja við nám á landsbyggðinni. Það að geta menntað sig í sinni heimabyggð gerir það að verkum að fólk getur frekar búið þar. Tækifærin hefur hins vegar skort til að stunda þá vinnu eða menntun sem fólk hefur áhuga á. Ungir jafnaðarmenn telja mikilvægt að styðja við bakið á menntastofnunum á landsbyggðinni. Auka þarf möguleika á fjarkennslu og efla þarf þá sem fyrir eru.

Deila

Facebook
Twitter
Ungir jafnaðarmenn

Nýlegar færslur

Uncategorized @is

Ungt jafnaðarfólk á Landsfundi

Þann 28. – 29. október síðastliðinn var haldinn Landsfundur Samfylkingarinnar – Jafnaðarflokks Íslands á Grand