[Ályktun] Ungir jafnaðarmenn í Vestmannaeyjum lýsa yfir stuðningi við Lúðvík

Ungir jafnaðarmenn í Vestmannaeyjum lýsa yfir eindregnum stuðningi við Lúðvík Bergvinsson, alþingismann og bæjarfulltrúa, í embætti varaformanns Samfylkingarinnar. Ungir jafnaðarmenn í Vestmannaeyjum lýsa yfir eindregnum stuðningi við Lúðvík Bergvinsson, alþingismann og bæjarfulltrúa, í embætti varaformanns Samfylkingarinnar.

Ungir jafnaðarmenn í Vestmannaeyjum telja að með Lúðvík í embætti varaformanns státi Samfylkingin af sterkum varaformanni. Lúðvík hefur sýnt það með störfum sínum á Alþingi að þar fer öflugur stjórnmálamaður sem myndi án efa stuðla að enn frekari vexti Samfylkingarinnar. Hann hefur talað fyrir mikilvægum málum og nýtur mikils trausts innan flokksins.

Lúðvík Bergvinsson er öflugur málsvari jafnaðarmanna í landinu og Ungir jafnaðarmenn í Vestmannaeyjum lýsa stoltir yfir stuðningi við hann og hvetja Samfylkingarfólk til að gera slíkt hið sama með því að kjósa Lúðvík í embætti varaformanns á landsfundi flokksins um komandi helgi.

Stjórn Ungra jafnaðarmanna í Vestmannaeyjum

Deila

Facebook
Twitter
Ungir jafnaðarmenn

Nýlegar færslur

Fréttir

Ný stjórn kjörin á landsþingi UJ

Landsþing Ungs jafnaðarfólks var haldið á laugardaginn, 31. ágúst 2024 í Samfylkingarhúsinu íHafnarfirði, Strandgötu 43.

Fréttir

Jöfn og Frjáls komið út

Jöfn og Frjáls er komið út. Blaðið sem er málgagn Ungs Jafnaðarfólks hefur nú verið