[Ályktun] UJ fagna fjárframlögum til Samkeppnisstofnunar en fordæma aðgerðaleysi viðskiptaráðherra gagnvart bönkum og tryggingafélögum

Ungir jafnaðarmenn, ungliðahreyfing Samfylkingarinnar, fagna því að fjárframlög til Samkeppnisstofnunar verði aukin. Forkastanlegt er að um 120 mál bíði úrlausnar hjá stofnuninni og að hana vanti tugi milljóna til að standa undir lögbundnum skyldum sínum. Ungir jafnaðarmenn, ungliðahreyfing Samfylkingarinnar, fagna því að fjárframlög til Samkeppnisstofnunar verði aukin. Forkastanlegt er að um 120 mál bíði úrlausnar hjá stofnuninni og að hana vanti tugi milljóna til að standa undir lögbundnum skyldum sínum.

Ungir jafnaðarmenn fordæma hins vegar að viðskiptaráðherra ætli ekki að óska eftir rannsókn á því hvort að verðsamráð eða ólöglegir viðskiptahættir tíðkist eða tíðkuðust í bankakerfinu og hjá tryggingafélögunum, líkt og ráðherrann gerði á sínum tíma þegar hún óskaði eftir því við Samkeppnisstofnun að olíufélögin yrðu rannsökuð.

Framkvæmastjórn Ungra jafnaðarmanna

Deila

Facebook
Twitter
Ungir jafnaðarmenn

Nýlegar færslur

Uncategorized @is

Ungt jafnaðarfólk á Landsfundi

Þann 28. – 29. október síðastliðinn var haldinn Landsfundur Samfylkingarinnar – Jafnaðarflokks Íslands á Grand