[Ályktun] Skorað á stjórnvöld að veita fórnarlömbum í Byrgismálinu tilhlýðilega málsmeðferð

UJ gagnrýna harðlega hvernig stærsti og alvarlegasti þátturinn í Byrgismálinu svokallaða virðist hafa gufað upp í umfjöllun um málið undanfarnar vikur. Ungir jafnaðarmenn, ungliðahreyfing Samfylkingarinnar, gagnrýna harðlega hvernig stærsti og alvarlegasti þátturinn í Byrgismálinu svokallaða virðist hafa gufað upp í umfjöllun um málið undanfarnar vikur. Meint misnotkun forstöðumanns Byrgisins gagnvart þeim einstaklingum sem þangað hafa sótt hjálp í boði ríkisins eru líklega alvarlegustu afleiðingarnar af stórfelldum embættisaflöpum í stjórnvalda í málefnum Byrgisins. Það er sorglegt og afar alvarlegt að sá hluti málsins sé höndlaður eins og um smávægilegan hlut sé að ræða.

Ungir jafnaðarmenn skora á stjórnvöld að taka fulla ábyrgð á sínum mistökum og veita fórnarlömbunum í þessu máli tilhlýðilega málsmeðferð. Jafnframt er skorað á fjölmiðla að fylgja þessum hluta málsins eftir. Gróf brot á trausti og réttindum einstaklinga ber að taka fram yfir umfjöllun um peninga og misnotkun á opinberu fé.

Deila

Facebook
Twitter
Ungir jafnaðarmenn

Nýlegar færslur

Uncategorized @is

Ungt jafnaðarfólk á Landsfundi

Þann 28. – 29. október síðastliðinn var haldinn Landsfundur Samfylkingarinnar – Jafnaðarflokks Íslands á Grand