Næstkomandi laugardag, 15. mars, kl. 13, verður útifundur á Ingólfstorgi til að mótmæla stríðinu í Írak og krefjast friðar þar og um heim allan. Næstkomandi laugardag, 15. mars, kl. 13, verður útifundur á Ingólfstorgi til að mótmæla stríðinu í Írak og krefjast friðar þar og um heim allan.
Þann 20. mars verða liðin fimm ár frá innrás Bandaríkjanna og bandamanna þeirra í Írak með stuðningi íslensku ríkisstjórnarinnar.
Mótmælaaðgerðir verða víða um heim á laugardaginn og í næstu viku undir kjörorðinu „Allur heimurinn gegn stríðinu“!
Tökum höndum saman við almenning um allan heim.
Fjölmennum!