Ætli það sé satt?

Það er ekkert leyndamál að menn ganga um götur Reykjavíkur berjandi fólk fyrir peninga og dóp og að hér eru strákar og stelpur sem selja líkama sinn fyrir peninga og eiturlyf. Hver sem segir: Nei, það er ekki satt lýgur að sjáfum sér og neitar að sjá heiminn eins og hann í raun og veru er. Haldið ykkur fast ef þið eruð ein af þessu fólki.Hér er margt fleira ógnvekjandi sem gerist, ungar stúlkur, 12-14 ára eru að verða að ósk eldri stráka og jafn aldra um munnmök til að komast inn í unglingssamkvæmi. Eiginmenn lúberja konurnar sínar og sumar konur niðurlægja börnin sín daglega. Hér eru foreldrar sem skilja börnin sín eftir í sömu blejunni í meira en sólahring og jafnvel skilja ungabörn eftirlitslaus. Það er ekkert leyndamál að menn ganga um götur Reykjavíkur berjandi fólk fyrir peninga og dóp og að hér eru strákar og stelpur sem selja líkama sinn fyrir peninga og eiturlyf. Hver sem segir: Nei, það er ekki satt lýgur að sjáfum sér og neitar að sjá heiminn eins og hann í raun og veru er. Haldið ykkur fast ef þið eruð ein af þessu fólki.Hér er margt fleira ógnvekjandi sem gerist, ungar stúlkur, 12-14 ára eru að verða að ósk eldri stráka og jafn aldra um munnmök til að komast inn í unglingssamkvæmi. Eiginmenn lúberja konurnar sínar og sumar konur niðurlægja börnin sín daglega. Hér eru foreldrar sem skilja börnin sín eftir í sömu blejunni í meira en sólahring og jafnvel skilja ungabörn eftirlitslaus.

Er þér orðið flögurt?
Mér verður illt í maganum, sár og svekkt hvert sinn sem ég leiði hugann af öllu því illa í þessum heimi. En eins og Dr. Phil segir þá er ekki hægt að leysa vandann nema sjá hann fyrst. Eins og það er ekki nóg að vita að bíll sé bilaður til að geta lagað hann. Við verðum að vita nákvæmlega hvað er að honum – eins verðum við að vita hversvegna íslenska þjóðin er eins og hún er. Sumir trúa því að ekkert illt sé til. Ég þekkti eitt sinn slíka stelpu, hún trúði því að engin maður væri illur og í hver sinn sem henni var bent á fólk eins og Hitler fékk hún tár í augun. Krúttlegt en gerir ekki mikið gang. Það er greinilega eitthvað illt til, veraldlegt eða andlegt ?

Hitler og hinir
Hvaða hvatir stjórnuðu Hitler? Eru hvatir okkar mannfólksins virkilega svoleiðis gerðar að þær getir fengið menn til að fremja illvirki eins og Hitler gerði á sínum tíma. Var hann eitthvað frábrugðin okkur hinum líkamlega ? Hvað var það sem fékk eins marga og raun ber vitni til að vera dáleitt af ræðum hans. Varla var það fólk eitthvað frábrugðið okkur hinum líkamlega? Hvernig gat hann orðið eins áhrifamikill og hann var? Og hvað með aðra svipaða, Idi Amin sem slátraði fólki í massavís í Úganda og hefur jafnvel verið kenndur við mannát. Hvað var það sem keyrði þá áfram í siðleysi sínu. Framkoma þeirra virðist svo ómannleg. Ég get ekki sett mig í þeirra spor og ég vona að sem fæstir geta það. Samt er ég manneskja eins og þeir. Er kannski eitthvað stærra, meira og verra en við í þessum heimi

Óskiljanlegt
Svo margt óskiljanlegt sem mannfólkið gerir eins og að vera tælt áfram af eiturlyfjum allt þangað til það horfir augliti til auglits við dauðann. Sprautar sig með smitaðri nál vís vitandi! Það er jafnvel eins óskiljanlegt fyrir þeim sem hafa gert slíkt eins og þér og mér. Þau lýsa því oft þannig að þau voru dregin áfram af afli sem var meira en þau. Sumir kalla það fíkn. Hvaðan kemur þessi fíkn, hvað stjórnar slíkur viðurstyggilegu afli. Er það virkilega okkar mannlegu hvatir? Eru það þá manneskjunnar illar sem selja börnum dóp, kaupa konur sem eru í neyð og misþyrma þeim eða fremja morð? Fæddist þetta fólk illt, gerði heimurinn þau svona eða er til eitthvað illt afl? Margt fólk trúir að djöfulinn sé til. Það segir að hann hafi verið fegursti og gáfaðasti engillinn en jafn framt sá versti. Hann miklaðist og féll til jarðar. Þau segja að hann sé ekki rauður púki með horn heldur að hann komi í ljósengils mynd og lokki fólk til sín. Þau segja líka að hans sterkasta vopn sé að fólk trúi ekki að hann sé til og kenni Guði um allt sem er slæmt.Ætli það sé satt?

Deila

Facebook
Twitter
Ungir jafnaðarmenn

Nýlegar færslur

Uncategorized @is

Ungt jafnaðarfólk á Landsfundi

Þann 28. – 29. október síðastliðinn var haldinn Landsfundur Samfylkingarinnar – Jafnaðarflokks Íslands á Grand