Aðalfundur UJR

Aðalfundur Ungra jafnaðarmanna í Reykjavík verður haldinn miðvikudaginn 13.  ágúst 2008 kl. 20:00 í húsnæði Samfylkingarinnar á Halllveigarstíg.

Aðalfundur Ungra jafnaðarmanna í Reykjavík verður haldinn miðvikudaginn 13.  ágúst 2008 kl. 20:00 í húsnæði Samfylkingarinnar á Halllveigarstíg
Dagskrá fundarins verður sem hér segir:
1. Afhending fundargagna
2. Setning aðalfundar
3. Kosning starfsmanna aðalfundar: forseta, fundarritara og
uppstillingarnefnd telji stjórn þörf á því.

4. Erindi gesta fundarins.
5. Framlagning ársskýrslu.
6. Framlagning ársreikninga.
7. Lagabreytingar.
8. Kosning í embætti.
9. Afgreiðsla ályktana og almennar stjórnmálaumræður.
10. Önnur mál.
11. Fundarslit.

Í síðasta landsþingi Ungra jafnaðarmanna var tekin sú ákvörðun
að aðildarfélög UJ myndu taka upp sérstök nöfn í fyrsta sinn. Hafa félögin hingað  til alla jafna einungis verið kölluð eftir þeim bæjarfélögum sem þau starfa í  Ungir jafnaðarmenn í Reykjavík, Ungir jafnaðarmenn í Kópavogi og svo framvegis en stendur nú til að þeim verði gefin nöfn eftir sameiginlegu
nafnaþema. Var  ákveðið að þemað myndi vera ,,íslenskar bókmenntapersónur” í víðasta skilningi þeirrar skilgreiningar.

Þegar nær dregur fundinum mun stjórn UJR senda út tilnefningar að
nýju nafni félagsins sem kosið verður um á aðalfundinum. Lumi einhver á góðri tillögu má sá hinn sami gjarnan koma henni áleiðis til stjórnarinnar (ujr@ujr.is) með upplýsingum um hvaðan viðkomandi nafn sé og stuttum rökstuðningi fyrir tillögunni.

Deila

Facebook
Twitter
Ungir jafnaðarmenn

Nýlegar færslur

Fréttir

Aukalandsþing Ungs Jafnaðarfólks

Aukalandsþing Ungs jafnaðarfólks verður haldið laugardaginn 1. mars núkomandi á Hallveigarstíg 1, Reykjavík. Á þinginu