Ný stjórn er tekin við á Akranesi. Á aðalfundi á laugardag var Ásdís Sigtryggsdóttir kjörin formaður félagsins. Samkvæmt venju var félagið nefnt eftir íslenskri bókmenntapersónu og hlaut það nafnið Snæfríður – ungir jafnaðarmenn á Akranesi.

Góðir gestir mættu á fundinn. Guðbjartur Hannesson, þingmaður hélt erindi og Anna Lára Steindal, verkefnisstjóri Rauða Krossins á Akranesi fjallaði um aðkomu Alþjóða Rauða krossins á Gaza. Í kjölfarið voru stjórnmálaumræður um ástandið í Ísrael og Palestínu.
Að aðalfundi loknum fundaði miðstjórn UJ, en henni er skylt að funda annan hvern mánuð utan höfuðborgarsvæðisins.
Ný stjórn Snæfríðar – ungra jafnaðarmanna á Akranesi:
Ásdís Sigtryggsdóttir, formaður
Hjalti Heiðar Jónsson, varaformaður
Vésteinn Sveinsson, gjaldkeri
Agla Harðardóttir, ritari
Harpa Jónsdóttir, meðstjórnandi
Bergþóra Sveinsdóttir, meðstjórnandi