Aðalfundur UJ Sel 15.sept

Aðalfundur Ungra jafnaðarmanna á Seltjarnarnesi (UJ Sel) verður haldinn mánudaginn 15. september 2008 kl. 20:00 í íþróttahúsinu á Seltjarnarnesi, fundarsal á 2. hæð.Aðalfundur Ungra jafnaðarmanna á Seltjarnarnesi (UJ Sel) verður haldinn mánudaginn 15. september 2008 kl. 20:00 í íþróttahúsinu á Seltjarnarnesi, fundarsal á 2. hæð.

Dagskrá fundarins er sem hér segir:

1. Afhending fundargagna

2. Setning aðalfundar.

3. Kosning starfsmanna aðalfundar: forseta, fundarritara.

4. Framlagning ársskýrslu.

5. Framlagning ársreikninga.

6. Lagabreytingar.

7. Kosning í embætti.

8. Afgreiðsla ályktana og almennar stjórnmálaumræður.

9. Önnur mál.

10. Fundarslit.

Ágúst Ólafur Ágústsson, varaformaður Samfylkingarinnar, ávarpar samkomuna og Garðar Stefánsson verkefnastjóri kynnir neytendaherferð Ungra jafnaðarmanna: Hugsa fyrst, kaupa svo.

Framboð í stjórn UJ Sel óskast send á Dagbjörtu Hákonardóttur, formann kjörstjórnar, á netfangið dah2@hi.is. Kosið verður í eftirtalin embætti:

Formann, varaformann, ritara, gjaldkera og meðstjórnendur.

Á síðasta landsþingi Ungra jafnaðarmanna var tekin sú ákvörðun að aðildarfélög hreyfingarinnar myndu taka upp sérstök nöfn í fyrsta sinn. Hafa félögin hingað til alla jafna einungis verið kölluð eftir þeim bæjarfélögum sem þau starfa í en nú stendur til að þeim verði gefin nöfn eftir sameiginlegu nafnaþema.

Var ákveðið að þemað myndi vera ,,íslenskar bókmenntapersónur” í víðasta skilningi þeirrar skilgreiningar. Ábendingar að nöfnum eru vel þegnar, hugmyndar óskast sendar á uj@samfylking.is með upplýsingum um hvaðan viðkomandi nafn sé og stuttum rökstuðningi fyrir tillögunni.

Deila

Facebook
Twitter
Ungir jafnaðarmenn

Nýlegar færslur

Uncategorized @is

Ungt jafnaðarfólk á Landsfundi

Þann 28. – 29. október síðastliðinn var haldinn Landsfundur Samfylkingarinnar – Jafnaðarflokks Íslands á Grand